Þú getur valið það skjákort sem þú vilt þó svo uppsetningarforritið reyni að finna það sem hentar þinni tölvu best.
Þegar þú hefur valið skjákort skaltu velja stærð skjáminnis í skjákortinu.
Þegar vélbúnaðar stillingu er lokið getur þú prófað stillinguna.
Þú getur einnig valið um það hvort þú viljir ræsa Red Hat Linux í grafísku umhverfi eftir að uppsetningu lýkur.
Veldu Sérsniðnar stillingar X hnappinn til þess að velja litastillingar og upplausn.
Þú getur einnig valið Sleppa stillingu X hnappinn ef þú vilt stilla X eftir að uppsetningu lýkur eða ef þú bara vilt alls ekki setja það upp.