Velja pakka fyrir pakka

Vinstra megin á skjánum sérðu lista af pakkahópum. Þegar þú útvíkkar listann og velur einn hóp mun listi af pökkum í þeim hóp birtast hægra megin.

Til þess að velja einstakan pakka skaltu tvísmella á hann eða smella einu sinni og svo á Velja uppsetningu á pakka. Hak mun koma við hvern þann pakka sem þú velur.

Til að fá frekari upplýsingar um einstakan pakka skaltu smella á hann. Upplýsingar um pakkann munu þá birtast neðst á skjánum ásamt nafni og stærð hans.